A fox? Well then a fox you shall be until I find your name, my foxy lady.

Silja, Hugrún, Diljá, Pollý, Sonja...

17.04.2007 14:27:52 / Booty

Önnur síða

Vegna týnslu lykilorða og fleiri vesena höfum við ákveðið (ég ákvað ;) að gera aðra síðu,

www.thefoxyclub.bloggar.is

eeeen ég ætla hins vegar ekki að gefa mér það bessaleyfi að segja að þessi síða sé alveg hætt ;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

16.04.2007 18:45:44 / Booty

teitur hinn færeyski :)

 
já annars... mig dreymdi svona líka skrýtinn draum...ég fór inn á foxyclub og ég var þá allt í einu komin í kirkju, sem Hugrún hafði breytt rosa mikið (?) og fengið fullt af dökkum gaurum þarna inn með pínu litla hatta...og þeir voru að syngja á einhverju suður evrópumáli eða arabísku (man ekki) og textinn var "Gare gare gare gare húan mín, gare húan mín, gare húan mín" æ þið munið eftir þessu lagi :) og það var semsagt einhver útlenska og þýddi á þeirra máli eitthvað um guð... jámm spes draumur :>


» 4 hafa sagt sína skoðun

14.04.2007 12:57:23 / polster

----------

Jæja, mér finnst alltaf voða gaman að þessu hérna og ég var að finna þetta aftur.

 

~Polster

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

10.04.2007 15:07:27 / Booty

wtf? hey pollý við erum frægar vúhú :D hehe 101 manns á síðunni í dag? hvað er að gerast??

anyway ég varð að létta þessu af mér. Rakst á þessar síður í dag, mér finnst þetta dálítið.....fyrirgefið slettuna...disturbing?

http://www.klovn.no/

http://home.no.net/dlsilja/cow/index.html


» 8 hafa sagt sína skoðun

05.04.2007 12:02:21 / polster

víííííííííííííí

Nik og Jay eru komnir í hús!!!
 
 
Já, þú last rétt, nýji, appelsínuguli diskurinn með Nik of Jay er kominn í húsið og ég fer að afrita hann fyrir þig, elsku Silja mín. Og svo á ég tvo rússneska diska úr ferð minni fyrr í haust sem ég ætla að gefa þér nú í prófunum. :D 
 
En hefurðu tekið eftir því að við erum duglegar að skipta á diskum í prófunum?
 
Love
~Polster 

» 5 hafa sagt sína skoðun

01.04.2007 12:44:26 / Booty

porcelain&the tramps, Lady Sovereign & Audrey Kitching...gg tónlist&gg hár

lady sovereign minnir mig dálítið á pollz?

» 3 hafa sagt sína skoðun

28.03.2007 22:06:34 / polster

Gæjablogg Pollýjar

Já, hérna eru ekki asískir gaurar... ég ætla að byrja þetta á að rifja upp gamla, góða og heita gaura ;)

 

Charlie Hunnam held ég þessi drengur heiti

Halló!!

hahaha ég veit að þessi mynd gleður margar.

Juan Pablo Raba! aka Orestes Villanueva í Mi gorda bella!

Gus Carr : heitur með meiru ;)

 

 

kveðja Polly

-ég er að vinna í evrópskum/rússneskum beautyum-


» 1 hafa sagt sína skoðun

26.03.2007 20:53:44 / Booty

Ekki gleyma að setja húfu á hausinn!!!!!

ekki segja að þú hafir ekki verið varaður/vöruð við. passaðu þig.
Þeir sem eru ekki með húfu, fá kvef. Þeir sem eru með hvef hvístla. Þeir sem hvístla, eru að ljúga. Þeir sem ljúga, stela. Þeir sem stela, fara í fangelsi. Þeirsem fara í fangelsi, sjúga. þeir sem sjúga fá prótein. Þeir sem fá prótein, eru hraustir. Svo að ekkert mál! Gleymdu endilega húfunni!!! Þeir sem stunda kynlíf, eru happy þeir sem nota verjur, fá ekki alnæmi Þeir sem fá ekki alnæmi, þeir eru happy Þeir sem eru happy, eru hálfvitar. Þeir sem eru hálfvitar, eru blankir. Þeir sem eru blankir, eru naktir. Þeir sem eru naktir, selja sig. Þeir sem selja sig, fá alnæmi! Svo gleymdu bara verjunni! Þú ert hvort sem er FUCKED!


» 1 hafa sagt sína skoðun

15.03.2007 14:40:28 / Booty

Birds and the bees, people!

Eru bara allir í kringum mann að eignast börn??
allavega...mér leist ekkert á þessa bumbukjóla sem voru á google.....

» 5 hafa sagt sína skoðun

09.03.2007 15:55:23 / Booty

jæja...þá eru það Bhangra söngvararnir...

Rishi Rich, Juggy D & Jay Sean

þessar elskur held ég að séu staðsettar í Engilsaxlandi, en þeir syngja blöndu af HipHop og Bhangra, sem hefur rætur í Asíu eins og þeir ;)
Bally Sagoo

» 5 hafa sagt sína skoðun

08.03.2007 19:43:02 / Booty

ni hao nicholas tse!!! hwai narn hai...?

ni hao bing dao baw pei Polly!! suo wo ai Tse!!...fang kai ni de xin!! ...nee tsai tzyr!! <3
þessi brýtur bæði gítara og hjörtu kvenna þegar hann er á sviði...
Nicholas Tse og Kóreyski popp prinsinn, Lee Ji Hoon

Mr Hoon: fæddur 79, blóðflokkur AB, 182 cm og 63 kg, margverðlaunaður og hefur leikið í nokkrum myndum þ.á.m. sweet dreams, pretty woman (2003), lovely rivals, wonderful life og síðast en ekki síst wet dreams 2
Jay Chou                     Lee Hom Wang! 


                            Lee Hom Wang fær hrós fyrir það að hafa verið í heimsókn hjá ömmu sinni á Valentínusardegi...hann er á lausu...hvað segiru pollz?? Hann er reyndar þrítugur...en það er ekki að sjá á honum...hélt að hann væri svona 24...heimasíðan segir allt ;)
Myndband :)
http://www.youtube.com/watch?v=AyBmKbuXt3c<p

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

25.02.2007 11:49:11 / Booty

djö langar mig í nýja diskinn frá nik&jay ;D

Nik&Jay


bkv Boobie Gridlenose
(tékkið Nafnið þitt tengil...)


» 5 hafa sagt sína skoðun

06.02.2007 22:45:14 / Booty

síðasta nemóið búið (hopefully)

jæja hvernig var þetta alltsaman...jú...vakna, leikritið Sextán...hef ekki hlegið svona mikið á nemósýningu! Mjög fyndin atriði og vel leikið :D Svo morgunpartý, allt of mikið af bakkelsi :P. Svo var farið heim og haft sig til. Ég hafði bara 3 klukkutíma svo eg sat með málninguna i annarri og sokkabuxnaspreyið i hinni og Beta min var svo væn að setja í mig slöngulokka í skiptum við rúllurnar sem ég setti í hana. Ég fór í sundbolinn (aka kjóllinn sem minn var víst frekar fleginn að framan OG að aftan OG stuttur :s) og smellti mér í hælana. Eftir að vera búin að setja á mig 5 lög af varalit, 3 kg af hárspreyi og eina ilmvatnsflösku athugaði ég birgðirnar í skemmtanahaldstöskunni minni. jújú allt sem til þarf þar í. Tóbas, varagloss, aukavaragloss, varalitur, skilríki, aukaskór og auðvitað miðinn. Einusinni fannst mér gloss hégómi og vitleysa fyrir mannlega púddilhunda. but whatever.

Við brunuðum á Hereford að skutla lilla bró og komum rétt 20 mínútum eftir áætlaðan tíma á Hótel Holt. Strákarnir að sjálfsögðu mættir hver öðrum glæsilegri og einnig voru þó nokkrar dömur á svæðinu. Semsagt fashionably late. fullkomin tímasetning. Stærðfræðikennarinn mætti galvaskur og heilsaði, og þegar leið á mætti restin af bekknum og Lögfræðikennarinn. Eftir smá spjall fórum við inn í matstofuna að snæða. Þegar ég ætlaði að setjast get ég svo svarið að ég hefði glöð viljað hafa kjólinn eilítið síðari. Eftir smá látbragðsleik við að halda honum niðri að neðan og uppi að ofan náði ég lendingu á sætinu. Jeij! :) . Smalltalk og beðið eftir forréttinum. Smalltalk og beðið eftir aðalréttinum (lengri bið svo það krafðist umræðuefnisfinnslu og varasmurninga á háu stigi). Desertinn kom fljúgandi á vængjum engla og ég heyrði Hallelúja og lúðrasöng þegar ég sá ljósið sem skein af ísnum og sorbetinu. mmmm!

Fyrirpartí. rétt misstum af annál bekkjarins. Svekk :s. Sumir sátu að sumbli og dönsuðu sem Michael Jackson á góðu kvöldi. Drakk áreyðanlega 2 L af H2O til að balansera mig fyrir ballið. Nú var ég edrú.

Ballið :) Við fengum séns. Við tókum sénsinn í rassinn, snerum honum við og hnéuðum hann. Við og Borgó. Við getum líklega kisst hálfþrjúböllin bless.
Mér fannst ég vera elst þarna inni, og allt í kring um mig var lið sem ég hef bara hreint út sagt aldrei séð áður. Inn á milli voru ungnemar á sínu fyrsta fylleríi. Ég fann til í olnbogabótunum þegar ég rak augun í unga hnátu með varalitinn út að eyrum, tunguna á hökunni, hárið tvist og bast, kjólinn að leka niður og með tómt augnaráð, að reyna að halda sér vakandi og lúkka kúl og leita að fórnarlambi, þegar allt sem hélt henni uppi voru tvær edrú vinkonur sitt hvoru megin sem greinilega voru búnar að ákveða að þær væru ekkert að fara að drekka á næstunni. *shiverz*

Eftir hörkustuð í HipHop DJ herberginu í bland við PaulOscar herbergið var haldið heim.

Djöfull var ég sátt.


» 6 hafa sagt sína skoðun

18.01.2007 15:55:04 / polster

Ojojojojojojojoj

Gleðilegt nýtt ár!!
*hugs all around*

Jæja, þar sem enginn hefur skrifað inn á þetta í óratíma, þá ákvað ég að fara og finna eitthvað mjög spes til að setja hér inn á nýja árinu.

allir að tékka þetta:
http://influks.com/post671.html

og já þetta er myndbandið af ofdekruðu gellunni sem er á b2.is

Allavega, vonast til að sjá þessa síðu vera virkari á þessu ári.
~Polster


» 3 hafa sagt sína skoðun

11.11.2006 11:49:35 / Booty

you want a bag? you want a boyfriend?

19. október síðastliðinn fór Stærðfræðibekkurinn 6. XY í 30 manna ferðalag til Flórens. Við höfðum safnað fé með 24 tíma eðlisfræðimaraþoni í skólanum. Í Flugstöðinni var meirihluti ferðamanna verslingar, og flestir dólganna þar voru með verzlunarpróf. Svo flugum við til Lundúna. Þar skemmtum við okkur á Oxford street (Starbucks I miss you :'( ) og á sósuhóteli sem heitir Piccadilly backpackers. Allir veggirnir þar voru annað hvort tómatsósurauðir, sinnepsgulir eða eins og kokteilsósa á litinn. Við vorum svona 2 tíma að finna herbergið okkar þar sem tölurnar á því voru dottnar af og það stóð "wet paint" utan á því.

Jæja. Svo fórum við að skemmta okkur með Terminator í annarri og Blue Lagoon í hinni. Eftir mikið næturbrölt fóru sumir að sofa en meginþorri ferðamanna fór að dansa í kring um forláta ruslatunnu fyrir utan syngjandi "dönsum við í kring um Einiberjarunn" við miklar undirtektir Lundúnabúa. Þeir meira að segja hringdu í vini sína Pópó (ísl: lögga;). Auðvitað gerði bekkurinn líka margt annað eins og að fara á Vísinda/náttúrufræðisafnið í Lundúnum. (sem var æði pæði :)


Stansted-Pisa: hlupum að ná fluginu okkar. Lentum í Písa og tókum lest þaðan til Flórens. Klukkan var orðin mjög margt þegar við komum þangað og við drifum okkur á hótelin. Ég, Beta og Ragna vorum saman í herbergi og biðum eftir að 30 karlmaður birtist í glugganum á móti að klæða sig úr. Það varð ekkert úr því fyrr en daginn eftir þegar við fórum í heimsókn á annað hótel. Það var ekki amalegt. Akkúrat svona eins og í myndunum :)

 jææææææja. Við fórum að skoða alls konar skemmtilegheit, ss kirkjur og söfn (uffizi, accademia, galileo) og markaði.
Ítalski pópóinn kom og ætlaði að handtaka nokkra töskukaupendur í myrku húsasundi, sem voru víst líka viðriðnir Einiberjarunn í Lundúnum. Annar maður háttaði sig úti á götu fyrir framan nokkrar ljóshærðar...það eru skrítnir hlutir þarna úti gott fólk...Svo ætluðum við Beta að fara á markaðinn að kaupa mér eitthvað ítalskt og þá var kallað: "You want a bag? You want a boyfriend??" "you want an umbrella? you want a lover??" "mama mia, Chiao Bella" ...ég beið bara eftir "you cook for me?"


svo skemmtum við okkur...what happends in the Barnyard stays in the Barnyard... og svo fórum við til Rómar. Skoðuðum vatíkanið og Péturskirkjuna. Ég verð að segja að mér fannst karlmennirnir ekkert spes þarna úti. Davíð og prestarnir voru það sem mest var varið í...en ég er góð þar sem Eyþórinn minn er laaaangsætastur :)

Allavega. Þegar við áttum að fara til baka til Pisa til að ná flugi til Stansted og þaðan til Kef fórum við út á vitlausu lestarstoppi og fengum 20 mínútur til að koma öllum þrjátíu í alla leigubíla á svæðinu, hoppa upp í einkabíla og húkka far með rútum. Við rétt náðum næturlestinni. Þar hitti ég svo vin minn Pepe sem bauð okkur Betu og Melkorku eina Maríu (Jónu). Við afþökkuðum pent með OJJJ eða nei takk, en fá þú þér endilega :) Hann reykti vel og lengi og gretti sig svo framan í mig og við sofnuðum öll mjööög vel. Eftir þetta var Pópó mættur aftur á svæðið fyrir utan klefann okkar.

Svo flugum við heim og lögðum okkur á öllum stöðum. Á stansted var leitað á okkur, við spurð spjörunum úr, leitað á mér, leitað undir skónum mínum, skórnir mínir gegnumlýstir og allur farangurinn minn, og Beta þurfti að bíða í hálftíma á meðan þeir gerðu ilmvatnsprufu (sem þeir fundu í töskunni hennar) upptæka.VÁ. Svo komum við öll mjög gáfuð, menntuð, listfrædd, dösuðog illa lyktandi heim til Keflavíkur.

allavega...fleiri myndir á www.dossy1.spaces.live.com :)

og já það er opið hús í listaháskólanum í dag frá 11.00 til 15.00 :)


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 14
piltur dagsins
�?�?�?�??�?�?�â�?��?��?�?â�?� �?¢â�??¬â�??¢�?�?�?�
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1734 dögum
Uppáhalds færslurnar okkar